Push the button to buy or listen to Hörður music
2000 - 2009
2009
# Ég hélt áfram með vikulega útifundi á Austurvelli til að styðja við bakið á almenningi í efnahagsþrengingum. Primo Popale. Ég setti fram eftirfarandi markmið: 3; Ríkisstjórnin og stjórnir Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands segðu af sér. Hélt fundi með flest öllum ráðherrum og sagði þeim upp störfum. Ég lagði á ráðin og stjórnaði aðgerð sem fólst í að umkringja Alþingishúsið 21 janúar þegar Alþingi koma saman eftir jólafrí. Það umsátur stóð í nokkra daga með áhrifamiklum hætti. Samtals stóðu útifundirnir í 25 vikur og fundirnir urðu 31. Síðasti útifundurinn sem ég stóð að var 14 mars. Eftir það lagði ég fundina niður þar sem öllum þrem markmiðum hans var náð.
# Þáði boð til Stockholm til að halda ræðu um framtak mitt á Austurvelli.
# Kertaljósatónleikar í Borgarleikhúsinu 10 mars. Mjög léleg aðsókn.
# Hlaut 6 mánaða starfslaun listamanna.
# Vann að samningu Vitans sem er söngvaævintýri í 5 þáttum.
# Hausttónleikar 33 árið í röð í Borgarleikhúsinu 10 september. Mjög léleg aðsókn.
# Endurnýjaði heimasíðuna mína. Bætti við hana plötu og bókaverslun.
# Vann að verkefni sem byggir á útifundum á Austurvelli.
# Vann að nýrri söngvabók, Söngvasafn 2.
# Vann að útsetningu söngva fyrir kóra og hljómsveitir.
2008
# Hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins; Til atlögu gegn fordómum.
# Kertaljósatónleikar í Borgarleikhúsinu 4. mars - Tileinkaðir ástinni. Uppselt.
# Vann að ævisögu minni í samstarfi við rithöfundinn Ævar Örn Jósepsson
# Ég hélt ónleika í Fríkirkjunni 9.mai til að fagna 30 ára stofnafmæli Samtakanna´78
# Ég var fenginn til að flytja nokkra söngva minna á Þorlákstíðum í Skálholti 20 júlí.
# í júlí og ágúst stóð ég fyrir mótmælum fyrir framan Dómsmálaráðuneytið vegna óréttmætrar brottvísunar Paul Ramses úr landi uns Paul var fluttur til baka í ágúst.
# Tvennir hausttónleikar í Borgarleikhúsinu 11. sept fyrir troðfullu húsi.
#Flutti tónleika með lögum mínum við ljóð Steins Steinarrs á hundrað ára afmæli Steins á málverkasýningu Sigurðar Þóris.
# Hugmyndasmiður og stjórnandi útifunda á Austurvelli. Mótmælin hófust 11.okt. og voru dagleg í viku en síðan á hverjum laugardegi. Mótmælin voru til að styðja við bakið á almenningi í efnahagsþrengingum.
# Ævisaga mín, TABÚ, kom út í októberlok.
# Var kosinn "Maður ársins" af hlustendum Rásar 2.
2007
# Hélt Kertaljósatónleika í stóra sal Borgarleikhússins 2. apríl
# Hélt tvenna hausttónleika í Borgarleikhúsinu 14 september . Uppselt.
# Gaf út plötuna JARÐSAGA.
# Tónleikaferðir um landið. (Hringurinn.) Góða aðsókn.
# Hljóðritaði plötuna Jarðsaga í hljóðveri Vilhjálms Guðjónssonar.
# Vann að söfnun heilmilda vegna ævisöguritunnar í samstarfi við rithöfundinn Ævar Örn Jósepsson
2006
# Tónleikaferð um allt landið. Síðasti Hringurinn sem þýðir að ég sleppt stöðum sem aðsókn hefur ekki verið góð í gegnum tíðina. Sé enga ástæðu lengur til að heimsækja þá. Aðsókn var mjög góð.
# Gaf út Söngvasafn, nótnabók, í samvinnu við Bókaútgáfuna Tind.
# Hét tvenna hausttónleika í Borgarleikhúsinu. Uppselt.
# Platan Heiðurstónleikar 10.09.´06 var gefin út.
# Mér sagt upp hjá Rás 1 með útvarpsþátturinn Sáðmenn Söngvanna í mai eftir átta ára viðveru. Ástæðan voru ágengnar en rökstuddar spurningar mínar um spillingu innan stofnunarinnar. Uppsögnin kom mér ekki á óvart.
# Endurblandaði og gaf út stafræna útgáfu af plötunni Tabú frá árinu 1987.
# Kertaljósatónleikar í apríl í stóra sal Borgarleikhússins.
# Fékk 3 mánaða listamannalaun til að vinna að ævisögu minni. Gagnasöfnun og úrvinnsla hóst í samvinnu við Ævar Örn Jósepsson rihöfund.
2005
# Tvennir hausttónleikar í Borgarleikhúsinu sama kvöldið. Uppselt.
# Stórtónleikar haldnir í Borgarleikhúsinu 10. september þar sem fjölmargir listamenn heiðruðu mig og þökkuðu framlag mitt til íslenskrar tónlistar og textagerðar.
#Tónleikaferðalag. (Hringurinn.) Mjög góð aðsókn. Víðast hvar uppselt.
# Útvarpsþátturinn Sáðmenn Söngvanna, vikulega.
Mjög vel sóttir tónleikar í Laugarborg, Eyjafirði 20.okt.
# Tónleikaferðalag til Danmerkur og Svíþjóðar í janúar og febrúar.
# NPU, samtök tónskálda og textahöfunda á norðurlöndunum heiðra mig fyrir framlag mitt til íslenskrar tónlistar.
# Vortónleikaferðalag um Ísland. ( Hringurinn)
# Keypti útgáfuréttindin að plötunni Söngvaskáld.
2004
# Hljóðritaði oggaf plötuna LOFTSSAGA.
# Hausttónleikar í Austurbæ í september fyrir fullu húsi.
# Tónleikaferð um allt landið. ( Hringurinn ) Góða aðsókn.
# Útvarpsþátturinn Sáðmenn söngvanna 6 árið í röð.
# Fékk 5 mánaða starfsstyrkur frá Reykjavíkurborg.
2003
# Hljóðritaði og gaf út plötuna ELDSSAGA
# Gerður að meðlim í Akademíu íslensku tónlistarverðlaunanna.
# Hausttónleikar í Austurbæ í september fyrir fullu húsi.
# Tónleikaferð um allt landið. ( Hringurinn ) Góða aðsókn.
# Útvarpsþátturinn Sáðmenn söngvanna 5 árið í röð.
# Boðið að flytja nokkra söngva á Gay Pride
# Heiðraður af Samfylkingunni fyrir mannréttindabaráttu mína.
2002
# Hljóðritaði plötuna Söngvaskáld með lögum mínum við ljóð Halldórs Laxness í samvinnu við útgáfufyrirtækið Edda/ Miðlun.
# Tónleikaferð um allt landið með dagskrá um Halldór Laxness.
# Gaf út safnplötuna Bergmál 71/02
# Hélt tvenna hausttónleika í september í Íslensku Óperunni. Uppselt.
# Tónleikaferð um allt landið. ( Hringurinn ) Mjög góð aðsókn.
# Útvarpsþátturinn Sáðmenn söngvanna
2001
# Tónleikaferð um norðurland og Kertaljósatónleikar í Íslensku Óperunni í mars – apríl.
# Leikstýriði “Fiskar á þurru landi” eftir Árna Ibsen, hjá Leikfélagi Laxdæla. Gerði leiktjöld og lýsingu.
# Hausttónleikar í september í Íslensku Óperunni. Uppselt.
# Undirbúningsvinna hafin að tónleikum vegna 100 ára fæðingarafmælis Halldórs Laxness í apríl 2002.
# Útvarpsþátturinn Sáðmenn söngvanna
# Hljóðritaði og gaf út plötuna LAUF
# Tónleikaferð um landið. ( Hringurinn ) Mjög góð aðsókn.
2000
# Fagnaði 30 ára afmæli fyrstu plötu minnar með tónleikum í Íslensku Óperunni í mars og fór með tónleikana víða um land. ( Hringurinn
# Var boðið að halda tónleika á Kristinhátíð á Þingvöllum 1 júlí í sérstökum lundi. Þáði boðið.
# Tvennir hausttónleikar í september í Íslensku Óperunni. Uppselt.
# Tónleikaferð um landið. (Hringurinn) Mikil aðsókn.
#Dvaldi mikið í Feneyjum.