Hörður Torfa

Heimasíða Harðar Torfasonar

Ýmislegt á prjónunum

hordursjalfur's picture

Það hefur lítið farið fyrir mér undanfarnar vikur og mánuði enda hef ég að mestu verið að sinna einkamálum sem sátu verulega á hakanum síðastliðinn vetur, nú svo og að hvíla mig. En ýmislegt er í bígerð svo sem undir búningur fyrir hausttónleikana sem verða haldnir í Borgarleikhúsinu þriðjudagskvöldið 8 september klukkan 20.00. Einning er ég að vinna að endurnýjun þessarar heimasíðu og það í fjórða eða fimmta skiptið sem síðan er endurnýjuð, en heimasíðunni hleypti ég af stokkunum veturinn 1995/96. Heimasíðanhefur semsagt haldist óbreytt í tæp sex ár og því komin tími á breytingar bæði útlitslega og ekki síst tæknilega.
Nýja heimasíðan verður með allt öðruvísi sniði. En það borgar sig ekki að tala mikið um það sem maður ætlar að gera, frekar það sem maður hefur gert. En það er stefnt að nýrri heimasíðu fyrir haustið. Ég mun senda út tilkynningar bæði um heimasíðuna og tónleikana.

Kær kveðja, Hörður