Hörður Torfa

Heimasíða Harðar Torfasonar

Söfnun á KAROLINA FUND

hordursjalfur's picture

 

Þar sem 50 ár verða liðin þann 21 apríl árið 2021 frá því að fyrsta platan mín kom út, og réttindabarátta hefur einkennt feril minn, fannst mér kjörið að minnast þessa áfanga með því að gefa út nokkra nýfundna söngva sem eiga það sameiginlegt að vera baráttutengdar vangaveltur og sýna nokkrar hliðar hennar.

DROPAR

Söngvarnir á plötunni DROPAR fundust fyrir tilviljun síðastliðið sumar í hljóðveri Vilhjálms Guðjónssonar en ég hef unnið mikið með honum undanfarna tvo áratugi með góðum árangri.

Á plötunni er að finna 12 söngva sem ég flyt einn með gítar og voru flest allir teknir upp þann 1 júlí 2010. Ég hef gjarna haft það til siðs þegar ég hef undirbúið plötur að taka upp tíu til tuttugu söngvaskissur í einni lotu og þá látið mér nægja eina töku á hvern söng með öllum mistökum sem slíkum vinnubrögðum fylgir. Ekkert lagfært eftir á. Síðan hef ég valið úr þessum skissum og fullunnið til útgáfu. Allt eftir markmiðum hvers verks. Einu verki lokið og tekist á við það næsta. Þetta þýðir að oft hafa afgangssöngvar jafnvel gleymst. En ekki í þessu tilfelli.

Undanfarin ár hef ég verið í uppgjöri við fortíð mína og verið að þrífa til í kringum mig og útskýra margt sem fólk vill vita og er forvitið um svo og ýmsilegt sem hefur ekki verið á hreinu enda hef ég alltaf lagt áherslu á málefnin hverju sinni en ekki á mig sem einstakling. Þessi plata DROPAR er hluti þessa uppgjörs og er 25 platan mín og um leið annar þáttur í röð verka minna um ævistarf mitt. Fyrst kom út bókin 75 sungnar sögur í 250 eintökum. Nú kemur platan DROPAR í 250 eintökum. Síðan stefni ég að því að skrifa bók um feril minn, aðferðir og verkefni og á hún að koma út í 250 eintökum næsta haust, 2021, sem endapunktur þessa uppgjörs. 

DROPAR kallast á við bækur mínar Tabú, Byltingu og 75 sungnar sögur.
Hér er tengingin á söfnunina: https://www.karolinafund.com/project/view/3150