Push the button to buy or listen to Hörður music
Nýtt útlit heimasíðu
Veriði velkomin á heimasíðuna mína. Fyrir ykkur sem hafið komið við hér áður sjáið að þetta er splunkunýtt útlit.En ég hef haldið úti heimasíðu síðan 1995 og er þetta í þriðja sinn sem síðan gengur í gegnum róttækar breytingar. Heimasíða þessi býr yfir fleiri eiginleikum en sú sem var fyrir. Meðal nýrra þátta er sá möguleiki að kaupa tónlistina mína hér af síðunni og einnig að fólk sem vill nýta sér síðuna verður að skrá sig inn sem notandi. Menn skildu ekki óttast að nöfn þeirra verði notuð til eins eða neins. Þetta er aðeins leið til að verjast öllum þeim leiðinda ágangi sem netið býr yfir svo sem spam árásum og álika leiðinda kvabbi.En það var orðið daglegt starf á gömlu síðunni að hreinsa óværuna.
Vegna ýmissa ástæðna mun þessi nýja síða fara hægt af stað en eftir það tek ég við stjórn hennar með meiri tilþrifum, vonandi. Hún er jú málgagn mitt. Og svo þið skiljið hvað ég á við með málgang þá bendi ég á þá einföldu staðreynd að íslenskir fjölmiðlar stjórna að miklu leiti almennri umræðu um menn og málefni og oft liggja þar að baki annarleg viðhorf og eigin hagsmunir.Ég sem sjálfstæður listamaður hef ekki selt mig einum né neinum. En ég skora á fólk að hafa alltaf í huga hverjir eiga fjölmiðla hér á landi og lesa þá með gagnrýnum huga.