Push the button to buy or listen to Hörður music
Hausttónleikar 2012 - 37 árið í röð!
Komiði sæl.
Mér til gamans dró ég fram mynd frá 1971 sem einn æðislega æstur aðdáandi minn fann um daginn og sendi mér. .(Þetta er smáskot á einn ónefndan :) En þessi mynd var tekin 1971 þegar ég var að gera aðra breiðskífuna mína, Án þín.
Síðan hefur liðið langur tími og mikið gerst og tuttugu og ein plata bæst við og hugmyndir að örfáum til viðbótar eru í vinnslu.
En fyrstu hausttónleikana mína hélt ég í september 1976 í svarta salnum á Hótel Vík og ég hef haldið þá síðan á hverju ári í september á ýmsum stöðum en oftast þó í stóra sal Borgarleikhússins en þar byrjaði ég með tónleikana 1991.
Þar verða þeir einnig í ár. Föstudagskvöldið 7 september 2012 klukkan 20.00.
Meira um málið síðar. :)