Push the button to buy or listen to Hörður music
Ég bið afsökunar...
Hér með bið ég Markús Þórhallsson Frá Djúpalæk einlægrar afsökunar á því að hafa lofað, í tvígang, að mæta í morgunþátt hans á útvarpi Sögu og í bæði skiptin sofið yfir mig. Ég hef lofað honum að mæta þriðjudagsmorgun 3 .janúar klukkan 08. og mun standa við það, enda ætlar Markús að hringja í mig:) En ég verða að segja að á sama tíma gleðst ég yfir þessum nýja eiginleika mínum að geta sofið meira en 8 tíma í einni lotu. Ég er að breytast hægt og rólega úr því að vera þessi síglaði og hressi morgunhani sem ég hef alla ævi verið yfir í rólegan, hægfara, yfirvegaðan svefndrukkinn mann að morgni hvers dags. - Mér er að takast margra ára ætlun mína að sættast við mistök mín og hætta að keppast við að vera fullkominn. Og það eitt er mér mikill léttir. - Og þá vitiði það :)
Meðfylgjandi ljósmynd er eftir: Hörð Torfason 2010
Flower decoration: Massimo Santanicchia